Þá er ég komin heim. Lenti seint í gærkv.
Solla sótti mig og ég skutlaði henni heim og stoppaði í smá
kaffi hjá henni. Dísess hvað það er grautleiðinlegt að
ferðast ein. Vera ein í flugvélinni og hafa enga öxl að halla
sér uppað þegar mann ætlar að leggja sig.
Ég er ekki
sátt við að vera komin heim, engin lítil Alexandra til að kúra hjá,
ætlaði aldrei að geta sofnaði í gærkvöldi. En ég fæ víst ekki
lengra sumarfrí hehehehe
Þó svo ég hafi ekki fengið glampandi
sumarsólina og hitann sem mig langaði svo agalega í þá var þetta
samt alveg æðislegt sumarfrí. Bjargaði mér algerlega og ég hefði
ekki lifað sumarfríið af ef ég hefði bara verið hér heima og ekki
farið út. Ætli ég hefði ekki dáið úr leiðindum 
Kotið var nú
ekki svo úldið þegar ég kom heim. En ég gleymdi nú samt að henda 2
tómötum sem voru inni ískáp ehhehehe Það lá við að þeir tækju
dansandi á móti mér þegar ég opnaði ískápinn. Hef svo verið
að vesenast í ýmsum málum í dag.
Dííí verð að
segja frá þessu,,, ég var stoppuð í tollinum í gær og var með
nokkra sígarettupakka í töskunni, en þar sem ég keypti karton í
fríhöfninni þá voru þessir pakkar teknir af mér og ég þurfti að
borga 4 þús í sekt..... Jebb við Einsi kallinn eigum nú
sameiginlegan óvin heheheheh Hr. Toll hahahahahhaha
Helga og
Heiðrún ætla að kíkja á mig á morgun, var búin að lofa þeim
pönnukökum ,,, Eg var nu að æfa mig um daginn þegar ég bauð Helgu
frænku, Jóa, Ása , Ragga og Magneu og auðvitað litlu Alex
frænku í kaffi,,, þá fór mín á fætur og bakaði pönnsur handa
fólkinu. Systir fékk vægt áfall held ég bara, hélt ég hefði verið
búin að láta hana vita að fólkið væri að koma í kaffi,,, en úps,,
ætli ég hafi ekki gleymt því bara. Well shit happens.

Ég ætla nú
bara að vera góð þessa helgi, ekkert út og ekkert djamm, enda búin
að djamma frá mér þetta vit sem eftir var í kollinum á mér þegar ég
var úti. Ég held ég hafi bara farið út hverja einustu helgi sem ég
var úti, Helga segir mig ekki hafa góð áhrif á sig,,,, hehehehhee
Af hverju ætli hún segi það ???? Skil ekkert í henni.
Hef í raun
ekkert að segja.... ákvað bara að setja eitthvað inn svo fólk sæi
nú að ég væri á lífi, er bara hundlöt núna. Ég bjó til nýtt
orðatiltæki í dag:
Illur fengur
gefur af sér illt......... Hljómar vel ekki satt ?